Vetrarblað Veiðimannsins 2022-2023

Veiðimaðurinn er kominn út og mun ylja veiðimönnum á aðventunni og kynda upp fyrir komandi veiðisumar. Víða er komið við á bakkanum og meðal þeirra sem koma við sögu eru Bing Crosby, DJ Sóley og Bubbi Morthens.

Ingvi Hrafn Jónsson ræðir um uppbyggingarárin við Langá og hvernig tókst að koma ánni í fremstu röð. Jonni leiðsögumaður við Langá veitir dýrmæt ráð og í blaðinu er að finna yfirlit yfir fræðsluefni liðinna ára en veiðimenn verða margs vísari eftir lestur þess.

Palli í Veiðihúsinu sýnir flugurnar sínar en sköpunarverk hans hafa freistað margra laxa og skapað dýrmætar minningar. Ýmislegt fleira er á borð borið.

Veiðimaðurinn er nú í dreifingu og mun berast félagsmönnum og áskrifendum á næstu dögum. Senn fer sól að hækka á lofti á ný og ekki seinna vænna en að huga að ævintýrum komandi sumars.

Gleðilega hátíð.

By Ingimundur Bergsson Fréttir