Í gærkvöldi fór fram fræðslukvöld á vegum fræðslunefndar SVFR. Tómas Za frá Veiðihorninu mætti og fór yfir viðhald veiðibúnaðar með áherslu á hvernig umhirðu skal háttað jafnt fyrir veiðitíma, yfir veiðitímann og í lok veiðitímans. Margir veiðimenn lögðu leið sína í dalinn og þrifu línur og hlustuðu á heilræði frá Tómasi.
Við þökkum þeim veiðimönnum sem mættu og Veiðihorninu fyrir að bjóða upp á góðan fund.
Með kveðju,
SVFR