Veitt með Kalla Lú í Langá!

Dagana 7.-9. ágúst geta veiðimenn komist í svokallaðan handleiðslutúr eða “hosted tour” með Kalla Lú en hann þekkir ána betur en flestir og hefur ánægju ef því að miðla sinni þekkingu.

Fyrir túrinn mun Kalli standa fyrir kynningu á ánni fyrir þá sem kaupa stangir í þessu holli, þar sem skoðaðar verða myndir af lykilstöðum ásamt því að farið verður yfir veiðistaðalýsingu sem hann hefur skrifað. Einnig verður farið yfir kort af ánni og veiðistaðir útskýrðir sem og aðkomu að þeim gert skil.

Kalli hefur verið við staðarhald og leiðsögn í Langá frá 2015 en hefur veitt hana síðan 1984 og þekkir ána gríðarlega vel og veit nákvæmlega hvar laxinn er og hvað hann er að taka á hverjum tíma.

Þegar veiðin hefst mun Kalli verða veiðimönnum innan handar, eins og tækifæri gefst, og er það von okkar að allir sem mæta í þetta holl fari reynslunni ríkari heim og auðvitað að veiðin verði góð.

Þetta er því frábært tækifæri fyrir þá sem vilja kynnast Langá betur!

Verð kr. 185.000 pr mann fyrir tvo daga með fæði (miðað við að tveir séu saman á stöng)

Hægt er að tryggja sér stöng með því að hafa samband á [email protected] eða í síma 568-6050

 

By Hjörleifur Steinarsson Fréttir