Hér ætlum við að stikla á stóru um ársvæði félagsins og þau veiðileyfi sem enn eru laus.
Nú fer að síga á seinni hluta veiðitímabilsins, sem virðist ætla að verða eitt hið besta í mörg ár, að minnsta kosti á Vestur- og Suðurlandi.
Sandá í Þistilfirði
Veiðin hefur verið vaxandi í Sandá. Fiskur kom seint fyrir norðan, sem má ef til vill rekja til mikils vatns og snjólosunar fyrri hluta sumars.
Góðar smálaxagöngur voru í síðasta stórstraumi og þær eru farnar að skila sér í veiðinni. Alls eru 143 laxar komnir í bók og fiskurinn hefur dreift sér vel um ána.
Nú er stórlaxatíminn handan við hornið í Sandá og enn er hægt að tryggja sér spennandi holl á þessum eftirsótta tíma. Að lokum fylgir skemmtileg ferskeytla eftir ljóðskáld félagsins, Ingimund Bergsson.
September er góður í Sandá,
stórlaxarnir fara á ferð.
Þar má flotta laxa fá
fyrir hagstætt verð.
Miðá í Dölum
Ágætis gangur hefur verið í Miðá og þar sem áin er síðsumarsá er besti tíminn framundan.
Bleikjuveiðin hefur löngum verið einn af styrkleikum árinnar og hún virðist ætla að halda sínu striki í ár. Jafnframt berast fregnir af því að töluvert af laxi sé genginn upp. Vatnsstaðan hefur þó helst verið að hamla veiðinni.
Nú eru veðrabreytingar og kærkomin væta í kortunum. Enn eru tvö holl laus í Miðá, þar af eitt dagana 10.–12. ágúst nk.
Flekkudalsá
Flekkan hefur verið á góðu róli, 42 laxar eru komnir í bók og síðsumarið gæti reynst áhugavert.
Vatnsstaðan er ávallt lykilatriði í Dalaánum og hér, líkt og í Miðánni, ættu veðrabreytingar að hjálpa mikið til.
Tvö holl eru laus í september – nú er að hrökkva eða stökkva!
Framhald í næstu viku.