Hér ætlum við að stikla á stóru um ársvæði félagsins og þau veiðileyfi sem enn eru laus.
Nú fer að síga á seinni hluta veiðitímabilsins, sem virðist ætla að verða eitt hið besta í mörg ár, að minnsta kosti á Vestur- og Suðurlandi.
Sandá í Þjórsárdal
Nú virðist sá silfraði vera að mæta í Þjórsárdalinn, fyrsti laxinn veiddist á sunnudaginn og á laugardaginn veiddist 60 cm sjóbirtingur.
Vatnsstaðan er hindrunin hér, en það er einhver væta í kortunum og þá gæti laxinn gengið upp í Sandána, hér borgar sig að fylgjast með veðurspá og grípa daga í vefsölu þegar spáð er vætu.
Gljúfurá í Borgarfirði
Gljúfurá í Borgarfirði er á fínu róli, 81 lax er kominn í bók auk slatta af sjóbirting og urriða, miklu munar orðið um betra aðgengi niður að Ós, neðra svæðið er mun meira inn í veiðinni núna.
Yfir 500 laxar voru gengnir í gegnum teljara síðast þegar fréttir fengust úr teljara, það eru 3 vikur síðan og örugglega slatti bæst við.
Það eru 2 holl laus í Gljúfurá í sumar, besti tíminn framundan.
3 stangir í sjálfsmennsku í frábæru nýuppgerðu húsi.
Laxá í Aðaldal - Miðsvæðið
Miðsvæðið er kynngimagnað svæði, þarna eru nokkrir af helstu stórlaxastöðum í Laxá í Aðaldal.
Fyrir utan frábæra urriðaveiði þá er þarna töluverð laxveiði og miðað við fréttir af Drottningunni þá er töluvert af laxi gengið í ána og því eftir miklu að slægjast, besti tíminn í ánni að ganga í hönd.
Eigum tvö holl eru laus á Miðsvæðinu sannkölluðum stórlaxatíma: 13-15 ágúst og 24-27 ágúst. 3 stanga svæði með mjög góðu húsi í sjálfsmennsku.
Reykjadalsá í Borgarfirði
Reykjadalsáin kom ný í flóru SVFR í sumar, skemmtileg 2 stanga á í Borgarfirði með frábæru húsi.
Áin er síðsumarsá, besti tíminn er ágúst og september.
Það eru 2 holl laus í ágúst og fimm holl í sept, athugið að það þarf að kaupa báðar stangir saman.
Vatnsdalsá í Vatnsfirði
Vatnsdalsá í Vatnsfirði hefur verið frekar róleg í sumar enda síðsumarsvæði í laxi.
Mikið er af sjóbleikju í neðri ánni og einnig hefur sést töluvert af laxi í ánni,mikið af fiski á ferðinni þarna á þessu svæði.
Nú er árnefndin búin að rafvæða húsið og setja upp hitakút í hús. Einnig er búið að byggja nýjan pall og gera húsið mjög huggulegt.
Það eru holl laus núna seinni part sumars, tilvalið að sameina veiðiferð og berjaferð vestur.