Nú geta fastagestir Gljúfurár farið að láta sig hlakka til sumarsins en ánægjulegt er að segja frá því að um þessar mundir standa yfir miklar endurbætur á veiðihúsinu. Enginn skortur er á faglærðum mönnum í húsi og unnið er hörðum höndum við að skipta út öllum gólfefnum, eldhúsinnréttingu og baðherbergjum auk þess að mála allt upp á nýtt. Þess má geta að síðasta sumar var komið fyrir nýjum heitum potti og því óhætt að segja að það eigi eftir að fara ennþá betur um veiðimenn í veiðihúsinu í sumar enda aðstaðan að verða fyrsta flokks.
Gljúfuráin, sem alltaf er jafn vinsæl meðal félagsmanna, er svo gott sem uppseld í sumar en við lumum þó enn á örfáum hollum sem sjá má HÉR.
Við hlökkum til að sýna ykkur myndir af endurbótunum þegar allt er orðið klárt.