Fyrstu ungmennadagar Stangaveiðifélags Reykjavíkur í Langá á Mýrum fóru fram dagana 18.–20. ágúst og óhætt er að segja að þeir hafi heppnast einstaklega vel. Viðburðurinn er kærkomin viðbót við starf félagsins og er ætlaður ungmennum á aldrinum 16–20 ára.
Viðtökurnar voru hreint út sagt frábærar en hátt í sjötíu umsóknir bárust. Alls fengu 48 ungmenni pláss og þátttakendum var skipt í tvo hópa. Hvor hópur fékk eina síðdegisvakt og eina morgunvakt við ána.
Gist var í veiðihúsinu Langárbyrgi þar sem boðið var upp á mat frá Lúx veitingum og kvöldskemmtun með Jógvani Hansen og Gunnari Helgasyni. Rúta var í boði fyrir þá sem vildu og lögð var áhersla á góða stemningu og samveru alla ferðina, bæði við ána og í veiðihúsinu.
20 laxar á land – og annað eins misst
Þaulreyndir leiðsögumenn fylgdu þátttakendum eftir í litlum hópum enda er góður leiðsögumaður oft gulls ígildi, sérstaklega þegar fyrstu skrefin í veiðinni eru stigin. Flest ungmennanna fengu tækifæri til að takast á við lax og samtals lönduðu hóparnir 20 löxum. Þá sluppu álíka margir eftir spennandi viðureignir.
Ungmennin eru framtíð félagsins
SVFR hefur um árabil staðið fyrir öflugu ungmennastarfi í Elliðaánum þar sem fjölmörg börn og ungmenni hafa tekið sín fyrstu köst. Sum hafa meira að segja verið svo heppin að landa maríulaxinum. Á síðustu árum hefur starfið einnig náð til Leirvogsár og Korpu og nú bætist Langá við þá flóru.
,,Það er okkur mikið kappsmál að efla ungmennastarfið og skapa fleiri tækifæri fyrir ungt fólk til að kynnast stangveiðinni. Við viljum auðvelda ungum veiðimönnum að stíga sín fyrstu skref og upplifa ánægju og félagsskap veiðinnar. Ungmennin eru framtíð félagsins og því skiptir máli að byggja upp öflugt starf fyrir næstu kynslóð veiðifólks,“ segir Ragnheiður Thorsteinsson, formaður SVFR.