Umsóknarfresti lýkur á miðnætti 31. desember

Nú fer hver að verða síðastur að sækja um í úthlutuninni en umsóknarfresti lýkur á miðnætti annað kvöld – 31. desember.

Við hvetjum þá sem ekki eru búnir að sækja um að drífa í því við fyrsta tækifæri. Starfsfólk skrifstofu verður félagsmönnum til halds og trausts í dag, 30. desember, en hægt er að ná í okkur með hefðbundnum leiðum í gegnum síma, tölvupóst og Facebook.

Fyrir þá sem sækja um á síðustu stundu, og kunna að lenda í vandræðum, er mikilvægt að hafa í huga að nauðsynlegt er að senda umsóknina í gegnum tölvupóst á svfr@svfr.is áður en nýja árið hringir inn því ekki verður tekið við umsóknum eftir að fresturinn rennur út.

Eingöngu félagar í SVFR sem hafa greitt félagsgjöldin fyrir 2025 eiga rétt á að senda inn umsókn(ir).

By SVFR ritstjórn Fréttir