Tröll í Djúpinu

Grímshólshylur er einn besti veiðistaðurinn í Laugardalsá

Það var sannkallaður höfðingi sem renndi sér í gegnum teljarann í Laugardalsá fyrir 2 vikum.

103 cm hængur gerði sig heimankominn, sjá meðfylgjandi klippu úr teljara.

Annars virðist vera að færast eitthvað líf í Laugardalsána, 21 lax í gegnum teljara í gær og reytingur dagana þar á undan.

Vonandi að veiðimenn sem eru á leiðinni í Laugardalsá fái tækifæri til að glíma við þennan höfðingja!

Laugardalsá (riverwatcherdaily.is)

(Smella á flipa largest)

Lausir dagar í Laugardalsá sjá hér:Vefsala – SVFR

By Hjörleifur Steinarsson Fréttir Laugardalsá