Elliðaárnar skörtuðu sínu fegursta í blíðskaparveðri þegar seinni tveir ungmennadagar sumarsins voru haldnir. Fyrri tveir dagarnir fóru fram í byrjun júlí og í ár var í fyrsta sinn boðið upp á fjóra ungmennadaga.
Við erum afar stolt af því að hafa tekið á móti 130 ungum veiðimönnum og gaman var að sjá hversu margir voru að taka þátt í fyrsta sinn. Áhugi ungu kynslóðarinnar á stangveiði hefur farið ört vaxandi síðustu ár og það er mikið gleðiefni fyrir okkur sem stöndum að viðburðinum.
Það er orðin ákveðin hefð fyrir sólskini á ungmennadögum og engin undantekning var á því, eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Við árbakkann ríkti líf og fjör og krakkarnir sýndu virkilega flotta takta. Ekki skemmdi fyrir að nokkrir Maríulaxar komu á land og gleðin sem fylgdi því leyndi sér ekki.
Á milli holla var slegið upp í pylsuveislu við veiðihús félagsins þar sem veiði morgunsins var rædd, sögur sagðar og góð ráð gefin fyrir næstu vakt.
Takk kærlega fyrir komuna, öll sem eitt! Við færum sjálfboðaliðunum, sem lögðu hönd á plóg, sérstakar þakkir fyrir mikilvægt framlag. Án þeirra væri viðburður sem þessi ekki mögulegur.
Ungmennadagar sumarsins skilja eftir sig margar dýrmætar minningar hjá ungu veiðifólki og það er gott að sjá og vita að framtíð stangveiðinnar er björt.
Myndir segja meira en þúsund orð - sjáumst aftur að ári liðnu!