SVFR kynnir Sandá í Þjórsárdal

Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur samið við Veiðifélag Hvammsár og Sandár um leigu á Sandá í Þjórsárdal til næstu fimm ára og hefur sölu strax eftir helgi á leyfum fyrir sumarið.

Sandá í Þjórsárdal er spennandi tveggja stanga valkostur fyrir veiðimenn sem vilja reyna við þann stóra en áin er síðsumarsá þar sem besti tíminn er öllu jöfnu eftir fyrstu haustrigningar en þegar lítið er í ánni virðist fiskur halda sig neðarlega og við ósinn. Seinni hluti ágúst og september eru því iðulega vinsælasti tíminn í ánni. Sandá hefur einnig að geyma silung. Veitt frá upptökum til ósa Þjórsá, frá morgni til kvölds, en ekkert veiðihús er við ána.

Áin er þekkt fyrir stórlaxa og má því ætla að stórlaxasumarið 2025 gæti orðið spennandi!

Það verður hagstætt að veiða í ánni en veiðileyfi verða á bilinu 30.000-60.000 krónum dagstöngin. Öllum fiski skal sleppt aftur.

Við vonum að félagsmenn taki þessu fallega ársvæði fagnandi og reyni við stórfiskana þar í sumar.

Eins og áður sagði fara leyfin í sölu eftir helgina.

Með kveðju,
SVFR

By Ingimundur Bergsson Fréttir