SVFR – á afmælisárinu.

Það er búið að vera mikið um að vera á þessu ári hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, en félagið fagnaði 80 ára afmæli þann 17. maí s.l.  Eftir vel heppnaða afmælishátið og árshátíð hafa verið haldnar kynningar, gönguferðir um ársvæði og fleira og fleira. Við stefnum að því að halda áfram að brydda upp á skemmtilegum viðburðum á árinu sem verða kynntir síðar. Hér fyrir ofan má sjá fróðlegt myndband tileinkað áfanga félagsins sem Ragnheiður Thorsteinsson, stjórnarmaður í SVFR klippti saman handa okkur. Myndbandið var frumsýnt á árshátíð félagsins en birtist nú hér til að allir geti notið.

 

Aðdragandi að stofnun félagsins var sá, að hinn 9. maí 1939 komu 16 menn sem stunduðu veiðar í Elliðaánum saman til fundar í Hótel Vík til þess að undirbúa stofnun „allsherjar veiðifélags”. Á þeim fundi var kosin fimm manna nefnd til að undirbúa stofnun veiðifélagsins sem í framhaldinu boðaði til stofnfundar hinn 17. maí sama ár í Baðstofu iðnaðarmanna. Á stofnfundinn mættu 48 veiðimenn og lögðu grunninn að þeirri fjöldahreyfingu sem Stangaveiðifélag Reykjavíkur er í dag. Ekki aðeins er SVFR eitt fjölmennasta ungmennafélag landsins heldur einnig stærsta stangaveiðifélag í heimi, eftir því sem næst verður komist. Víða er stangaveiði elítusport, en hérlendis er hún almenningsíþrótt, ástríða, náttúruupplifun og tómstund um 60 þúsund veiðimanna á öllum aldri. SVFR er hryggsúlan í íslenska veiðisamfélaginu, félag með mikla sögu og bjarta framtíð. Mikið hefur þó breyst frá stofnun félagsins. Það sem áður þótti sérviskusport er orðið almennings- og fjölskylduíþrótt. Nú er félagatalan kominn í um 2.500 og allar aðstæður gerbreyttar frá því sem áður var. Áhugi á stangveiði hefur aukist, viðhorf til veiðinnar, fisksins og náttúrunnar hafa þróast í takt við tímann. Stangaveiðifélag Reykjavíkur leigir nú um 20 veiðisvæði víðsvegar um land og hefur til ráðstöfunar rúmlega 7.400 stangaveiðidaga á þessu sumri fyrir lax og silung, og eru þá ekki talin með vötn sem félagið hefur til umráða. Þau gildi sem frumkvöðlar félagsins höfðu að leiðarljósi eru enn í hávegum höfð, líkt og má lesa út úr lögum SVFR. Stangaveiðifélagið leggur megináherslu á að efla hróður stangaveiði með almennri fræðslu um íþróttina og stuðla að því að veiðimenn umgangist náttúruna af virðingu og tillitssemi. Hið öfluga félagsstarf gengur út á að styrkja stöðu stangaveiði sem almennings- og fjölskylduíþróttar og efla áhuga barna og unglinga á stangaveiði, með fræðslustarfi og kennslu í veiðileikni. Stangaveiðifélag Reykjavíkur mun eftir sem áður vinna að samstöðu stangaveiðimanna og standa vörð um rétt þeirra og hagsmuni.
By admin Fréttir