SVFR 84 ÁRA Í DAG!

Til hamingju með daginn kæru félagsmenn – en fyrir nákvæmlega 84 árum hittust 48 áhugamenn um stangveiði og stofnuðu með sér veiðifélag, m.a. til að stuðla að uppbyggingu Elliðaánna. Áhugi á stangveiði í þá daga var ekki mikill og þeir þóttu jafnvel skrítnir sem léku sér við slíkt. Nú er öldin önnur og tugþúsundir Íslendinga stunda stangveiði á hverju sumri. Í tilefni dagsins er boðið til Opins húss í Rafveituheimilinu í Elliðaárdalnum – sem enn er heimavöllur félagsins. Dagskráin er fjölbreytt og við vonumst til að sjá ykkur sem flest – bæði félagsmenn og aðra veiðimenn.

Með veiðikveðju frá skrifstofunni!

SVFR

 

 

 

By Ingimundur Bergsson Fréttir