Sumarstarf við veiðiumsjón og eftirlit

Veiðiumsjón og eftirlit á höfuðborgarsvæðinu.

Hefurðu gaman að veiði, útiveru og nýturðu þín í samskiptum við fólk? SVFR leitar að 1-2 jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingum til að taka að sér verkefni veiðiumsjónar og -vörslu sumarið 2023. Reiknað er með að verkefnið byrji um 1. júlí (eða fyrr) og því ljúki um 15. september eða samkvæmt samkomulagi.

Verkefnið felur í sér m.a.

  • Móttöku og samskipti við veiðmenn
  • Eftirlit með veiðimönnum við veiðar og mögulegum veiðiþjófnaði
  • Umsjón og miðlun upplýsinga til veiðimanna í samstarfi við skrifstofu
  • Eftirfylgni á veiðiskráningu
  • Úthlutun veiðisvæða til veiðimanna

Nauðsynlegt er fyrir umsækjendur að hafa gilt ökuskírteini.
Umsókn skal fyllt út á svfr.is/storf.
Umsóknarfrestur er til og með mánudagsins 19. júní.

Við hvetjum þig til að sækja um starfið hafir þú áhuga á að starfa að mestu í Elliðaárdal í kringum veiðimenn í sumar!

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Ingimundur Bergsson,
[email protected]
S: 568-6050

By Ingimundur Bergsson Fréttir