Slær hjarta þitt í Gufudalsá?

Stangaveiðifélag Reykjavíkur óskar eftir fimm áhugasömum og kraftmiklum félagsmönnum í nýja árnefnd Gufudalsár sem skipuð verður á næstu vikum. Umsækjendur þurfa ekki að búa yfir neinum sérstökum hæfileikum öðrum en dugnaði og vilja til að sinna sjálfboðastarfi í þágu félagsins.

Árnefndir SVFR eru gífurlega mikilvægur hlekkur í félagsstarfinu og sinna þróttmiklu og óeigingjörnu starfi á öllum þeim ársvæðum sem félagið hefur innan sinna banda en segja má að árnefndirnar séu eins konar umsjónaraðilar hvers ársvæðis fyrir sig. Verkefnin eru eins misjöfn og þau eru mörg en öll hafa þau það að leiðarljósi að sjá til þess að ársvæðið taki sem best á móti veiðimönnum á ári hverju.

Umsóknarfrestur er til og með mánudagsins 10. febrúar nk.

Smelltu hér til að senda inn umsókn

By SVFR ritstjórn Fréttir Gufudalsá