Risaurriði úr Laxá í Mývatnssveit

Eins og veiðimenn sem hafa sótt heim Mývatnssveitina vita, þá hefur meðalstærð fiska þar farið vaxandi. Kristján Jónsson hefur stundað svæðið lengi og oft fengið væna fiska en aldrei ævintýri eins og hann lenti í núna.  Hann var við veiðar í Sprengjuflóa þegar hann fékk 83 cm urriða sem er með þeim allra stærstu sem veiðsta hafa í Mývatnssveitinni í manna minnum.

Mikið hefur komið af fiskum um og yfir 70 cm í ár, en það er mjög sjaldgæft að fá fisk sem nær 80 cm.  Þessi fallegi fiskur fer því í sögubækur Mývatnssveitar sem einn allra stærsti fiskurinn sem veiðst hefur á svæðinu.

Vel er selt á svæðin, en hægt er að finna nokkrar lausar stangir á vefsölunni okkar svfr.is/vefsala

Við óskum Kristjáni til hamingju með fiskinn sem var hinn glæsilegasti og í góðum holdum.

Með urriðakveðju,

SVFR

By Ingimundur Bergsson Fréttir