FRÁ 20.500 KR.
Elliðaár
Elliðaárnar eru einstakt laxveiðisvæði í hjarta Reykjavíkur og heimavöllur SVFR. Svæðið er kjörið fyrir byrjendur og býður upp á fjölskylduvæna upplifun.
Tímabil
Laxveiði 20. júní til 15. september
Veiðin
Lax, 4-6 stangir, eingöngu fluga með flugustöng. Öllum fiski sleppt að undanskildum örmerktum laxi og silungi.
Mæting
20. júní til 31. ágúst:
Veiðihús
1. til 15. september:
Hundasteinar
Veiðivarsla
821-3977
Veiðiþjófnað skal tilkynna til veiðivarðar.
Frá 20. júní til 31. ágúst
791 5800
svfrveidivarsla@gmail.com
Veiðisvæðið - veiðin
Elliðaárnar sameina það sem fá veiðisvæði bjóða: lifandi laxveiði í náttúrulegu og fallegu umhverfi – innan borgarmarka Reykjavíkur. Þrátt fyrir að árnar sé hluti af einni vinsælustu útivistarperlu borgarinnar, þar sem gangandi og hjólandi umferð er stöðug, halda þær og veiðin sínum einstaka karakter. Veiðimenn lýsa Elliðaánum sem fjölbreyttu og krefjandi veiðisvæði, þar sem straumar, hyljir og breytilegar aðstæður kalla á nákvæma nálgun og góða lesningu á vatninu. Elliðaárnar eru sannarlega einstakar og hafa um áratugaskeið átt sérstakan stað í hjörtum félagsmanna.
Veiðin hefur verið stöðug og góð undanfarin ár en meðalveiði síðustu tíu ára (2014-2023) er 700 laxar. Mesta veiðin síðustu 10 ár var 2018 eða 960 laxar.
Hér er að finna góða leiðsögn frá Ásgeiri Heiðari, leiðsögumanni veiðimanna til áratuga, um hvernig hægt er að veiða þekkt maðkasvæði með flugu.
- Temperature
- Precipitation
- Rain Chance
- Wind
- Humidity
- Pressure
Gagnlegar upplýsingar
Veiðireglur
Vinsamlegast kynnið ykkur veiðireglurnar og virðið þær. Brot á veiðireglum varða fyrirvaralausum brottrekstri úr Elliðaám, upptöku afla og veiðafæra ásamt öðrum viðurlögum eftir því sem við á.
Gangið vel um veiðisvæðið, valdið ekki jarðraski og hirðið allt rusl. Sýnið náttúrunni virðingu og keyrið ekki utanvega. Allan afla ber að skrá í rafræna veiðibók.
Leiðsögn
Leiðsögumenn SVFR eru valdir af kostgæfni og búa yfir áratugareynslu og sérþekkingu á veiðisvæðum félagsins. Með leiðsögumanni í för nýtist tíminn betur, veiðin verður markvissari og upplifun veiðimanna ríkari.
Markvissari veiði
Fagleg ráðgjöf
Verðskrá veiðileyfa frá 20. júní til 15. september 2026
Stangarverð – fyrir hádegi
Stangarverð er birt með fyrirvara um innsláttarvillur og breytingar.
Stangarverð – eftir hádegi
Stangarverð er birt með fyrirvara um innsláttarvillur og breytingar.