Elliðaár
Elliðaárnar halda sínu striki og er tala veiddra laxa að nálgast 600. Það verður spennandi að fylgjast með næstum vikum en eingöngu vantar 25 laxa til að jafna lokatölur síðasta árs. Elliðaárnar eru uppseldar í ár.
Flekkudalsá
Eftir ágætis kropp þessa síðustu viku er áin að skríða í 100 laxa og vatnsstaða góð. Þá er gaman að segja frá því að við fengum fréttir af tveimur veiðikonum sem báðar fengu Maríulaxinn sinn í gær og það á sömu vaktinni. Gleðin er því allsráðandi í Flekkudalsá um þessar mundir.
Gljúfurá
Heldur rólegt hefur verið yfir Gljúfurá í sumar þrátt fyrir fínar rispur inn á milli. Ekki má þó gleyma að áin er þekkt fyrir að vera sterkust síðsumars svo þeir sem eiga leyfi eftir miðjan mánuðinn geta farið að láta sig hlakka til! Fyrir áhugasama eigum við tvö laus holl seint í september sem sjá má HÉR.
Haukadalsá
Haukan er búin að vera mjög sterk upp á síðkastið en áin óx mikið í monsúnrigningum síðustu viku og fór úr sex rúmmetrum í tíu. Í kjölfarið kom ansi kröftug innspýting af nýjum fiski sem var fljótur að dreifa sér um alla á. Veiðibókin státar nú af 261 laxi en á sama tíma í fyrra voru þeir 163. Haukadalsá er uppseld í ár.
Korpa/Úlfarsá
Mikið líf er í ánni og veiðin komin í 144 laxa og 31 sjóbirting. Áhugavert verður að fylgjast gangi mála næstu vikur í Korpunni sem er fyrir löngu orðin uppseld.
Langá
Nóg af vatni, stundum meira að segja aðeins of mikið, og fiskurinn vel dreifður. Já, Langáin er enn sterk og vikuveiðin, rúmir 100 laxar, lyftir heildartölum upp í 767 laxa. Þess má geta að lausum dögum fer ört fækkandi og því um að gera að tryggja sé stöng tímanlega en HÉR má sjá lausar dagsetningar.
Laugardalsá
Ágúst byrjar vel í Laugardalsá en veiðin hefur tekið mikinn kipp síðustu vikuna, sem skilaði 18 löxum á land, og eru heildartölur því komnar í 51 lax. Að sögn Hermanns Hermannssonar sem var við veiðar nýverið er talsvert er af laxi, þó hann haldi sig reyndar á fáum stöðum, og með því að læðast og hvíla má gera fínustu veiði. Hermann og félagar lönduðu 5 löxum, og misstu þá marga, en fengu líka slatta af vænum urriða. Í vefsölunni okkar er að finna tvö laus holl í Laugardalsá í september sem sjá má HÉR.
Leirvogsá
Það hafa verið sveiflur í Leirvogsánni í sumar en hún er á góðu skriði núna og birtingurinn að koma sterkur inn. Skráningum síðstu vikuna er þó ábótavant og það er vonandi að þær skili sér í bók sem fyrst. Við eigum fjóra lausa septemberdaga í vefsölunni – sjá HÉR.
Miðá
Síðastliðin vika var talsvert rólegri í Miðánni en sú á undan enda maðkatímabilið á enda. Heildartölur eru 133 laxar og verður fróðlegt að fylgjast með næstu dögum. Þrjú holl, öll undir lok september, er að finna í vefsölunni – sjá HÉR.
Sandá
Eftir góða síðustu viku er Sandáin að komast í gírinn. Nú er tími stórlaxanna handan við hornið og enn eru tvö laus holl í september – sjá HÉR.
Þverá í Haukadal
Þveráin hefur heldur betur sótt í sig veðrið síðustu daga en 21 fiskur er nú kominn í bók síðan tímabilið hófst – þar af 13 þessa fyrstu viku ágústmánaðar. Það er greinilegt að engu er logið þegar veiðimenn segja að mikið líf sé í ánni. Hermann Þór Marínósson var, við annan mann, á veiðum í vikunni og gengu þeir félagar um 40 kílómetra og veiddu ána frá toppi til táar.
Við gefum Hermanni orðið:
„Efsta svæðið er rosalegt! Við löbbuðum 40 kílómetra þennan dag og náðum þremur löxum á efsta svæðinu.”
Brúará í landi Sels
Brúará hefur komið nokkuð sterk inn að undanförnu og sem fyrr er nóg af sjóbleikju á ákveðnum stöðum. Laus leyfi er að finna í HÉR.
Flókadalsá í Fljótum
Tíðindalítið hefur verið í Flókadalsá síðustu vikur þó bleikjan sé svo sannarlega til staðar. Aðstæður ættu nú að vera orðnar talsvert betri þar sem jafnvægi hefur verið að komast á vatnsmagnið svo vonandi fer að birta til.
Gufudalsá
Eftir því sem við best vitum hefur veiðin haldist nokkuð stöðug að undanförnu í Gufudalsánni en það er greinilegt að rafræna veiðibókin á ekki upp á pallborðið hjá öllum því skráningin heldur áfram að vera afspyrnu léleg sem okkur þykir miður. Við bíðum spennt eftir að komast með puttana í pappírsbókina svo hægt sé að gefa rauntölur úr veiðinni.
Laxá í Mývatnssveit
Frábær veiði er á svæðinu og eru 2961 urriðar komnir á land ásamt 60 bleikjum. Nú fer hver að verða síðastur að skella sér í Mývatnssveitina áður en tímabilið er á enda en lausar stangir má sjá HÉR.
Laxá í Laxárdal
Dalurinn hefur verið góður í sumar og mikið af smærri fiski í kringum 50 cm. að koma inn í veiðina – sannkallaðir ruðningsboltar eins og sjá má á myndinni hér að neðan. Tímabilinu lýkur eftir slétta viku, eða þann 15. ágúst, og það verður gaman að fylgjast með lokatölum.