Opna húsið á föstudaginn

Síðasta opna hús vetrarins verður haldið í Rafveituheimilinu að Rafstöðvarvegi 20 föstudagskvöldið 5. maí. Dagskráin er klár og er hún svohljóðandi:

  • Húsið opnar kl. 19:00 og verður grillvagn á staðnum og munu kokkar sjá um að grilla borgara í mannskapinn. Sennilega er best að koma með stóra beltið og tóman maga. Verð á borgara verður 1.000 kr.
  • Þorsteinn Stefánsson veiði- og leiðsögumaður mun segja okkur frá veiði í Þingvallavatni fyrir landi þjóðgarðsins. Frábært innlegg nú þegar Þingvallavatn er að vakna til lífsins
  • Það er fátt skemmtilegra en góðar veiðisögur og mun Guðrún Hólmgeirsdóttir veiðikona, heimspekingur og skáld sjá um þann þátt.
  • Pub Quiz um veiði
  • Reiða Öndin verður á staðnum með kynningu á sínum vörum
  • Veiðivon verður með veiðivörukynningu
  • Vínkynning verður einnig fyrir áhugasama. Sennilegast best að skilja bílinn eftir heima.

Umfram allt stefnum við á að skemmta okkur vel saman og halda uppi einstaklega góðri stemmningu. Við biðlum því til félagsmanna sem og annars áhugafólks um stangveiði að fjölmenna á þetta síðasta opna hús vetrarins þar sem við komum saman og tökum á móti sumri.

Sjáumst hress föstudagskvöldið 5. maí kl. 19.00

By admin Fréttir