Miðsvæðið í Laxá í Aðaldal – mín fyrstu kynni

Hjölli með 60 cm fisk á Miðsvæðinu

Svæði sem skilur eftir sig djúp spor

Nýverið fór undirritaður ásamt góðum félögum á Miðsvæðið í Laxá í Aðaldal og var upplifunin sú að hér væri um sannkallaðan gimstein að ræða. Fyrir þá sem kunna að veiða Mývatnssveit og Laxárdal er þetta svæði líklegt til að falla einstaklega vel í geð, fjölbreytt, fallegt og fullt af spennandi veiðistöðum

Það sem stendur hvað mest upp úr er hversu fjölbreytt svæðið er. Á efsta hluta þess, við Ytra Fjall, tekur við grynnra vatn með meiri uppitökum sem skapar kjöraðstæður fyrir þurrflugusveiði. Þar var mikið líf og greinilegt að þar er mikið af fiski, fengum fiska frá 30cm upp í 61cm, mikið af 45-50cm fiski sem er fáránlega gaman að eiga við á léttar græjur!

Hjölli og Kolka með vænan urriða
Veiðimaður með 61 cm Urriði sem veiddist á Óseyrinni
Veiðimaður með vænan fisk á Miðsvæðinu

Goðsagnakenndir veiðistaðir með karakter

Neðar á svæðinu taka við staðir sem erfitt er að lýsa öðruvísi en sem kyngimagnaðir. Veiðistaðir á borð við Dýjaveitur, Breiðeyri, Höskuldsvík og Helgaholu bera með sér einstakan karakter og gera svæðið að sannri upplifun fyrir veiðimenn sem kunna að meta fallegt umhverfi og fjölbreytta veiði.

Veiðimaður emð 48 cm urriða sem veiddist í Dýjaveitum
Veiðimaður með 62 urriða úr Höskuldarvík
Veiðimaður með 62 cm fisk úr Höskuldarvík á Miðsvæðinu

24 fiskar á land og annað eins misst

Hollið lauk ferðinni með 24 lönduðum fiskum, auk fjölda tapaðra fiska og góðs slatta af tökum. Þrátt fyrir að áin sé enn nokkuð köld og fiskurinn ekki að fullu búinn að dreifa sér um kerfið var greinilegt að mikið líf er komið í ána og spennandi tímar fram undan.

Aðstaðan við svæðið er mjög góð. Húsið er vel búið, herbergin góð og rúmin þægileg, mjög góð vöðlugeymsla einnig. Þá er aðgengi að svæðinu afar gott og víðast hvar vel fært flestum bílum.

Það er óhætt að segja að Miðsvæðið hafi komið skemmtilega á óvart og skilji eftir frábærar minningar frá þessu einstaka svæði. Hér er á ferðinni veiðisvæði sem veiðimenn munu eflaust vilja heimsækja aftur, það er næsta víst að mitt holl bókar að ári!

Veiðistaðurinn Breiðeyri á Miðsvæðinu
Veiðimaður með urriða sem veiddist á Vallavaði á Miðsvæðinu
Veiðimaður með urriða sem veiddist í Höskuldarvík