MAX LAX – laxveiðinámskeið

Laxveiðin virðist oft vonlaus þegar hún er erfið á annað borð. En svo þarf ekki að vera !

Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja ná betri árangri í sinni laxveiði. Farið er yfir allar helstu veiðiaðferðir, skipulag við veiðar, búnað, mismunandi aðstæður, flugur, hvernig best er að þreyta fisk og fleira með það að markmiði að þú náir betri árangri í baráttunni við laxinn. Kennarar á námskeiðinu eru Sigþór Steinn Ólafsson og Hrafn H. Hauksson en þeir hafa mikla reynslu af laxveiðum sem og leiðsögumennsku um land allt.

Þetta er EKKI klassíska rullan um eitt kast og eitt skref. Þeir félagar ætla að kafa djúpt ofan í laxveiðina og deila öllum þeim “trixum” sem þú þarft að kunna til að ná árangri í baráttunni við þann silfraða. Það verða öll leyndarmálin skilin eftir á borðinu á þessu námskeiði !Námskeiðið er í fyrirlestar formi og tekur 3 klukkustundir. Í lokin er svo gert ráð fyrir umræðum.

Námkeiðið er  í boði 16. mars og 20 sæti í boði. Hægt er að kaupa sæti hér fyrir neðan:

16. febrúar 2023

 

By Ingimundur Bergsson Fréttir