Líflegt í Laxárdal

Félagarnir Ægir Jónas og Stefán Einar voru við veiðar í Laxárdal dagana 20-22 júní og gerðu góða veiði. „Áin var hlý og við sáum fiska á flestum stöðum, það var glampandi sól til að byrja með en þegar það dróg fyrir sólu fóru hlutirnir að gerast. Við fengum 8 fiska og erum hæstánægðir með það.“ Fiskarnir voru allir á bilinu 55 – 62cm og í góðum holdum, flestir tóku svartan nobbler en black ghost var einnig öflugur.

Framundan er frábær tími í Laxárdalnum og það sérstaklega fyrir þurrfluguveiði.

 

 

By admin Fréttir