Laxveiði á næsta fræðslukvöldi SVFR – 23. mars

Síðasta Fræðslukvöld á vegum SVFR var einstaklega vel sótt og skemmtilegt og greinilegt að veiðimenn og veiðikonur voru orðin langeyg eftir tækifæri að hittast og ræða veiði.

Á síðasta fræðslukvöldi var talað um sjóbirting en á næsta kvöldi, sem verður haldið á Ölveri í Glæsibæ á miðvikudaginn komandi – 23. mars, verður farið í laxveiði enda styttist óðum í að sá silfraði fari að mæta í árnar. Til að fræða viðstadda um það helsta í laxveiðinni verða Karl Magnús Gunnarsson leiðsögumaður en hann hefur verið viðloðin veiðileiðsögn í um tvo áratugi. Vala Árnadóttir er dóttir hins kunnuga laxahvíslara Árna Bald og hefur verið við veiðar víða um heim frá blautu barnsbeini og er í dag ein reyndasta veiðikona landsins. Undirritaður fær pínu kjánahroll við að tilkynna að hann verði síðan sá síðasti í púltinu það kvöld en á 30 árum við laxveiðar og veiðileiðsögn hlýtur að vera eitthvað sem maður getur kennt og komið á framfæri.

Umræðuefnið verður sem fyrr laxveiði og þar verður stiklað á því helsta sem viðkemur laxveiðum en þar má nefna aðkomu að veiðistað, veitt og sleppt, val á flugum, yfirferð á veiðistað, hvar liggur laxinn, hvíld veiðistaða, haustveiði vs sumarveiði og margt fleira.

Á kvöldinu verður að vanda glæsilegt happdrætti í lokin og verða vinningar frá Vesturröst, Veiðivon, Veiðifélaginu, Veiðihorninu, Veiðiportinu, Flugubúllunni og Veiðiflugum á hlaðborði vinninga á þessu kvöldi og reyndar öllum kvöldunum sem framundan eru.

Dagskráin hefst klukkan 20:00 á miðvikudagskvöldið og eru veiðimenn og veiðikonur hvattir til að mæta tímanlega til að tryggja sér sæti á Ölveri.

By SVFR ritstjórn Fréttir