Seinni hluti ágúst mánaðar er að margra mati einn skemmtilegasti tími sumarsins við árbakkann. Fiskur er víða kominn vel upp í árnar, kvöldin farin að styttast og oft skapast frábærar aðstæður til veiða þegar líður á sumarið. Því er um að gera að nýta síðustu daga sumarsins og skella sér í veiði , hvort sem ætlunin er að eltast við lax eða silung,
Spennandi laus holl í ágúst
Laxá í Aðaldal - Miðsvæðið. 24. - 27. ágúst. 3. stangir. Verð fyrir hollið: 630.000 kr. Smelltu til að kaupa
Nú eru stórlaxarnir farnir á stjá og þá er gott að eiga stöng í Laxá. Þessi glæsilega 84 cm hryggna hér fyrir ofan veiddist í Símastreng fyrir skömmu. Einnig er í boði frábær urriðaveiði, og geta þeir orðið ansi vænir.
Gufudalsá. 27.- 30. ágúst. – 4 stangir. Verð fyrir hollið: 429.600 kr. Smelltu til að kaupa
Skemmtileg bleikjuveiði fyrir alla fjölskylduna. Stórt og rúmgott veiðihús með heitum potti, grillaðstöðu og internet tengingu.
Vatnsdalsá í Vatnsfirði. 24.- 26. og 26. - 28. ágúst. – 2 stangir. Verð fyrir hollið: 200.000 kr. Smelltu til að kaupa
Ef þig vantar frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á svfr@svfr.is eða hafa samband í síma 568 6050
Öll verð eru með 20% félagaafslætti.
Laxinn mættur í Sandá í Þjórsárdal!
Laxinn er mættur í Sandá í Þjórsárdal og nú er um að gera að næla sér í laus veiðileyfi á þessu skemmtilega og fjölbreytta ársvæði.