Langárævintýri í gær þegar 94 sm laxi var landað eftir langa baráttu!

Mikil þurrkatíð hefur einkennt laxveiðina á suðvestuhorninu síðustu daga og vikur og veiðin því ekki verið upp á marga fiska. Ævintýrin gerast þrátt fyrir það en Hrafnhildur Sigþórsdóttir var að veiða neðsta svæðið í gær þegar hún setur í tröllvaxinn 94 sm lax. Undir var undraflugan Silver Sheep #14 og stóð baráttan lengi yfir enda vildi veiðikonan ekki taka of fast á þessum stórfiski þar sem hún var ekki með taum fyrir svona átök.

Laxinn tók í Myrkhyl (nr. 8) og stjórnaði hann ferðinni algjörlega til að byrja með en hægt og rólega náði Hrafnhildur að smokra laxinum upp á Breiðuna (9) þar sem honum var landað innan um fjölda áhorfenda sem bar að garði til að fylgast með baráttunni.

Það var erfitt að segja til um hvor var þreyttari eftir átökin, veiðikonan eða laxinn, þannig að ekki var farið í miklar myndatökur af veiðikonu og laxi en við látum myndasyrpuna hér fyrir neðan fylgja með.

 

Það voru fleiri ævintýri sem áttu sér stað í þessu holli þegar Líf Lárusdóttir fékk þennan fallega maríulax.

 

Nú spáir loksins alvöru rigningu í lok vikunnar, en það er það sem veiðimenn hafa verið að bíða eftir í mjög langan tíma. Rétt er að benda á að enn eru lausar fyrir þá sem vilja skella sér í Langá og veiða seinnipartinn á laugardaginn og fyrripartinn á sunnudaginn en það er eini möguleikinn til að kaupa stakan dag (hálfur – hálfur) í sumar. Skoða vefsölu hér:

 

Með veiðikveðju,

SVFR

 

 

 

 

 

By Ingimundur Bergsson Fréttir