Kráká til SVFR

Hrannar Pétursson með væna bleikju úr Kráká

Spennandi ársvæði í Mývatnsveit

Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur undirritað samning við Veiðifélag Laxár og Krákár um að Kráká verði framvegis rekin undir merkjum félagsins. Með samningnum bætist spennandi og sögufrægt ársvæði við fjölbreytt úrval veiðisvæða SVFR.

Kráká er fjögurra stanga á sem rennur um fallegt landslag í Mývatnssveit áður en hún sameinast Laxá í Mývatnssveit. Áin hefur löngum verið þekkt fyrir sérstaka náttúrufegurð, tærar lindir og skemmtilega veiði. Hún hentar jafnt reyndum veiðimönnum sem þeim sem vilja upplifa einstaka náttúru og ró í hjarta Norðurlands.

Formaður veiðfélags kráka og Ragneiður Thorsteinsson við undirritun samningsins

Veiðileyfi á frábæru verði

Kráká er ekki aðeins þekkt fyrir góða veiði heldur einnig fyrir þjóðsöguna um tröllskessuna Kráku sem á að hafa skapað farveg árinnar. Samkvæmt þjóðsögunni ruddi skessan sér leið um landið með þeim afleiðingum að áin myndaðist og hefur síðan borið nafn hennar. Þessi skemmtilega tenging við íslenskan sagnaarfi gefur ánni sérstakan svip og gerir heimsókn að Kráká enn eftirminnilegri.

Veiðitímabilið í Kráká hófst 29. maí og er  hægt að kaupa veiðileyfi í vefsölu. Stangardagurinn fyrir félagsmenn er á afar hagstæðu verð, eða aðeins 5.000 kr.

Hrannar Pétursson með flottan urriða úr Kráká
By Ingvi Örn Ingvason Fréttir Kráká