Góð stemning á heiðurskaffi heldri félaga

Um miðjan apríl var heldri meðlimum félagsins boðið í sérstakt heiðurskaffi á skrifstofu SVFR að Suðurlandsbraut 54. Þetta er annað árið í röð sem við höldum slíkan viðburð og því má nú segja að hefð sé farin að myndast.

Mætingin var frábær og stemningin ekki síðri. Gleði og léttleiki voru allsráðandi og eins og oft þegar gott fólk kemur saman var mikið spjallað og hlegið. Ragnheiður formaður heilsaði upp á mannskapinn, ásamt öðrum meðlimum stjórnar, og hélt stutta tölu. Þá stóðu starfsmenn skrifstofunnar vaktina í eldhúsinu og sáu til þess að ekki yrði skortur á kaffi, vöfflum og rjóma.

Það var ekki annað að sjá en félagsmenn væru lukkulegir með daginn en allir kvöddu með bros á vör. Eitt er þó víst að heiðurskaffið er komið til að vera og við hlökkum til að taka á móti ykkur að ári liðnu.

Takk kærlega fyrir komuna, öll sem eitt.



By Eva María Grétarsdóttir Fréttir