Gengið með Langá

Á laugardaginn kemur 15. júní bjóðum við uppá gönguferð meðfram Langá en þar mun vanur leiðgsögumaður sem gjörþekkir ána leiða hópinn.

Þetta er kjörin leið til að kynnast ánni og eflaust verða gefnar góðar upplýsingar sem gagnast þeim sem stunda ána og þeirra sem vilja kynnast henni.

Mæting kl. 10.00 á planið hjá SVFR – Rafstöðvarvegi 14, þar sem menn geta sameinast í bíla. Þeir sem fara á eigin vegum er bent á að gangan hefst við veiðihús Langár kl. 12.00

Við biðjum þátttakendur um að skrá sig á viðburðinn þannig að við getum áætlað þáttökufjöldann. Ef þú ert ekki með Facebook aðgang er líka hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á skrifstofu ([email protected]).

Lágmarks þáttaka er 5 manns.

By SVFR ritstjórn Fréttir