Fréttir af Sandá í Þistilfirði

Sandá hefur farið frekar rólega af stað, núna í hádeginu voru 73 laxar skráðir til bókar. Gaman er að segja frá að hlutfall stórlaxa er afar hátt, enda er Sandá rómuð stórlaxaá!

Kristín Ingibjörn Gísladóttir er að veiða núna í Sandá og sendi okkur stutta línu, smálaxinn er byrjaður að ganga og gaf morgunvaktin 4 fiska. Kristín er búin að landa tveimur löxum, 90cm sem tók Collie dog túbu í Ólafshyl og 85cm sem tók sunray hitch í Brúarhyl.

 

By SVFR ritstjórn Fréttir