Takið fimmtudagskvöldið 26. janúar frá!

Silungurinn verður í aðalhlutverki á fyrsta fræðslukvöldi ársins sem fram fer á sportbarnum Ölver í Glæsibæ fimmtudaginn 26. janúar.

Veiðidrottningin Helga Gísla og Ólafur Tómas „Dagbók urriða“ verða sérstakir gestir og að vanda verður stórglæsilegt happdrætti á staðnum!

Húsið opnar klukkan 19 og eru allir velkomnir.

Með kveðju,
Fræðslunefndin

By SVFR ritstjórn Fréttir