Frábær holl laus á næstu dögum!

Sandá í Þistilfirði

Eitt holl laust í ágúst, 23-26.8

Ágætis veiði í Þistilfirðinum núna,  frábær laxveiðiá og þetta er nú heldur betur tækifæri til að kynnast henni.

Hafið samband við skrifstofu SVFR ef áhugi er á þessu holli.

Vatnsdalsá í Vatnsfirði

3 holl eru laus í ágúst,slatti af laxi er genginn í ánna og töluvert er um væna sjóbleikju.

 

Reykjadalsá í Borgarfirði

Þessi netta 2 stanga á í Borgarfirðinum leynir á sér, með 176 laxa á 2 stangir síðasta sumar.

Frábært hús í sjálfsmennsku, athugið að hér þarf að kaupa báðar stangir saman.

ATH! Laust holl 17-19.8

Laxá í Aðaldal - Miðsvæðið

Eitt laust holl á Miðsvæðinu í ágúst.

Glæsilegt veiðisvæði með mikilli stórlaxavon og frábærri urriðaveiði með í bland

Flott hús í sjálfsmennsku, 3 stangir seldar saman.

Langá á Mýrum

Langá á Mýrum  er blá af laxi, bókstaflega!

Það er mál manna að það séu einhverjir áratugir síðan að það hefur sést annað eins magn af laxi í Langá.

Mjög fáar stangir eru eftir í Langá þetta árið, síðasti séns að komast í alvöru laxveiði í Langá!

 

By Hjörleifur Steinarsson Fréttir