Góðan daginn.
SVFR býður upp á flugukastnámskeið núna með vorinu.
Við höfum samið við Jóhann Sigurð Þorbjörnsson, einn besta flugukastara og flugukastkennara landsins að sjá um þessi námskeið fyrir okkur.
Nú þegar er uppselt á fyrstu 2 námskeiðin 5. og 6. maí, því höfum við ákveðið í samráði við Jóa að bæta við 2 námskeiðum í viðbót.
Námskeiðin verða haldin 12. og 13. maí á Rauðavatni, námskeiðin byrja kl 19:00 og eru til kl 21:00.
Þáttakendur mæta með sína stöng, einnig er ráðlegt að mæta með vöðlur og hlýjan fatnað.
Pláss er fyrir 5 þáttakendur á hvoru námskeiði fyrir sig, skráning fyrir 12. maí hér, skráning fyrir 13. maí hér.
Verð á námskeiði er 12.000 kr. fyrir félagsmenn og konur SVFR, 15.000 kr. fyrir utanfélagsmenn.