Flugukastnámskeið með Klaus Frimor

Stangaveiðifélag Reykjavíkur og Veiðiflugur munu í maí bjóða upp á flugukastnámskeið, fyrir byrjendur sem lengra komna. Kennari verður einn fremsti flugukastkennari í heimi, Klaus Frimor.

Klaus hefur síðustu áratugi starfað sem aðalhönnuður hjá Loop Tackle og Guideline þar sem hann hefur hannað, prófað og þróað flugustangir og flugulínur. Að auki hefur hann verið leiðsögumaður víðsvegar um landið um margra ára skeið. Mikil reynsla býr þarna að baki og ættu allir veiðimenn, reyndir sem óreyndir, að geta aukið þekkingu sína og getu í fluguköstum. Farið verður yfir undirstöðuatriðin en jafnframt kafað dýpra og hin ýmsu afbrigði flugukasta kynnt til sögunnar.

Námskeiðin eru kjörin fyrir þau sem eru að taka sín fyrstu köst, en nýtast einnig vanari veiðimönnum því hér gefst gott tækifæri að leiðrétta villur í köstunum og bæta um leið framsetningu flugunnar. Farið verður yfir ólíkar gerðir flugulína, notkun á mismunandi taumum og hvernig best er að haga veiðibúnaðinum svo vel takist til þegar á bakkann er komið. Það munu sannarlega öll græða á að sækja þessi námskeið enda gefst veiðimönnum kostur á að leita svara við öllum þeim spurningum sem viðkoma fluguköstum.

 

Námskeiðin verða níu talsins og í þrjár klukkustundir hvert:

  • Sunnudagurinn 12. maí kl. 11:00-14:00 – einhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Mánudagurinn 13. maí kl. 18:00-21:00 – einhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Miðvikudagurinn 15. maí kl.18:00-21:00 –  einhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Laugardagurinn 18. maí kl. 15:00-18:00 – einhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Sunnudagurinn 12. maí kl. 15:00-18:00 – tvíhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Þriðjudagurinn 14.maí kl. 18:00-21:00 – tvíhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Fimmtudagurinn 16. maí kl. 18:00-21:00 – tvíhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Föstudagurinn 17. maí kl. 18:00-21:00 – tvíhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Laugardagurinn 18. maí kl. 11:00-14:00 tvíhendu námskeið – 6 laus pláss

Verð til félagsmanna SVFR er 13.000 kr., en þau sem ekki eru í félaginu greiða 16.000 kr.

Námskeiðin verða haldin við Rauðavatn fyrir neðan Morgunblaðshúsið. Þátttakendur skulu mæta með stöng, hjól og línu. Gott er að vera með stígvél eða vöðlur meðferðis.

 

Skráning fer fram HÉR.

By SVFR ritstjórn Fréttir