Flugukastnámskeið með Klaus Frimor!

Stangaveiðifélag Reykjavíkur og Veiðiflugur bjóða upp á spennandi flugukastnámskeið í maí með Klaus Frimor, einum reyndasta flugukastkennara heims.

Námskeiðin eru frábær kostur fyrir einstaklinga, vinahópa og fjölskyldur, þar sem einungis sex þátttakendur eru á hverju námskeiði. Þau henta bæði byrjendum sem eru að stíga sín fyrstu skref í fluguköstum og reyndari veiðimönnum sem vilja lagfæra smávægilegar villur og bæta framsetningu flugunnar.

Á námskeiðunum verður farið yfir mismunandi tegundir flugulína, hvernig taumum er best háttað og hvernig best er að bera sig að við veiðar. Allir sem sækja námskeiðin fá einstakt tækifæri til að fá svör við spurningum tengdum fluguköstum og bæta leikni sína í fluguveiði.

 Kennari verður einn fremsti flugukastkennari í heimi, Klaus Frimor. Það er mikill hvalreki að fá jafn flottan kennara til liðs við okkur, enda býr hann að yfirgripsmikilli þekkingu. Klaus hefur síðustu áratugi starfað sem aðalhönnuður hjá Loop og Guideline þar sem hann hefur hannað, prófað og þróað flugustangir og flugulínur. Að auki hefur hann verið leiðsögumaður víðsvegar um landið um margra ára skeið.

Mikil reynsla býr þarna að baki og ættu allir veiðimenn, reyndir sem óreyndir, að geta aukið þekkingu sína og getu í fluguköstum. Farið verður yfir undirstöðuatriðin en jafnframt kafað dýpra og hin ýmsu afbrigði flugukasta kynnt til sögunnar.

Námskeiðin eru kjörin fyrir þau sem eru að taka sín fyrstu köst, en nýtast einnig vanari veiðimönnum því hér gefst gott tækifæri að leiðrétta villur í köstunum og bæta um leið framsetningu flugunnar. Farið verður yfir ólíkar gerðir flugulína, notkun á mismunandi taumum og hvernig best er að haga veiðibúnaðinum svo vel takist til þegar á bakkann er komið. Það munu sannarlega öll græða á að sækja þessi námskeið enda gefst veiðimönnum kostur á að leita svara við öllum þeim spurningum sem viðkoma fluguköstum.

Verð til félagsmanna SVFR er 13.000 kr. líkt og undanfarin ár, en þau sem ekki eru í félaginu greiða 16.000 kr.
Félagsmenn eru beðnir um að gefa upp kennitölu í skilaboðareit í körfu.

Námskeiðin verða haldin við Rauðavatn fyrir neðan Morgunblaðshúsið. Þátttakendur skulu mæta með stöng, hjól og línu. Gott er að vera með stígvél eða vöðlur meðferðis.

Góða skemmtun!



📅 Takmarkað pláss – skráning hafin!
👉 Nánari upplýsingar: veidiflugur.is/flugukastnamskeid

Námskeiðin verða níu talsins og í þrjár klukkustundir hvert:

  • Laugardagurinn  10. maí kl. 11:00-14:00 – einhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Sunnudagurinn 11. maí kl. 15:00-18:00 – einhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Þriðjudagurinn 13. maí kl.18:00-21:00 –  einhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Fimmtudagurinn 15. maí kl. 18:00-21:00 – einhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Laugardagurinn 10. maí kl. 15:00-18:00 – tvíhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Sunnudagurinn 11.maí kl. 11:00-14:00 – tvíhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Mánudagurinn 12. maí kl. 18:00-21:00 – tvíhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Miðvikudagurinn 14. maí kl. 18:00-21:00 – tvíhendu námskeið – 6 laus pláss
  • Föstudagurinn 16. maí kl. 18:00-21:00 tvíhendu námskeið – 6 laus pláss

Verð til félagsmanna SVFR er 13.000 kr., en þau sem ekki eru í félaginu greiða 16.000 kr.

 

Skráning fer fram HÉR.

 

By Hjörleifur Steinarsson Fréttir