Laxveiðitímabilið í Elliðaánum hefst formlega á morgun, laugardaginn 20. júní, klukkan 08:00 við hátíðlega athöfn við veiðihúsið í Elliðaárdal.
Ragnheiður Thorsteinsson, formaður SVFR, mun lýsa formlega yfir upphafi veiðitímabilsins og bjóða Hildi Björnsdóttur borgarstjóra Reykjavíkur, Björgu Magnúsdóttur forseta borgarstjórnar, Einari Þorsteinssyni formanni borgarráðs og Reykvíkingi ársins að hefja veiðar. Verður þetta í 87. sinn sem Elliðaárnar eru opnaðar undir merkjum SVFR og hefur borgarstjóri Reykjavíkur tekið þátt í opnuninni samfellt frá árinu 1960.
Mikið spenna fyrir fyrsta laxinum
Lax er þegar farinn að ganga í áarnar og ríkil mikil eftirvænting fyrir komandi veiðisumri, en veiðin var með besta móti í fyrra og eftirspurn eftir veiðileyfum sjaldan verið meiri en fyrir komandi veiðitímabili.
Mikil spenna ríkir yfir því hvar og hvenær fyrsti lax sumarsins veiðist enda gjarnan sá lax sem er mest myndaður á hverju ári.
Elliðaárnar skipa sérstakan sess í hjarta Reykvíkinga. Þær eru meðal þekktustu og gjöfulustu laxveiðiáa landsins og jafnframt mikilvægur hluti af einstöku útivistarsvæði borgarinnar. Á hverju sumri stíga fjölmargir ungir veiðimenn sín fyrstu skref við árbakkann og kynnast þar þeirri gleði og áskorun sem stangaveiðin hefur upp á að bjóða.
Boðið verður upp á morgunverð við veiðihúsið klukkan 7:45 áður en formleg opnun hefst. Við það tækifæri verður meðal annars tilkynnt hver hlýtur nafnbótina Reykvíkingur ársins.