Laxveiðitímabilið í Elliðaánum var formlega opnað við hátíðlega athöfn laugardaginn 20. júní í einstakri veðurblíðu. Fjölmenni var samankomið við veiðihúsið í Elliðaárdal þar sem stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur, fulltrúar Reykjavíkurborgar, Reykvíkingur ársins 2026, fjölmiðlar, félagsmenn SVFR og aðrir gestir komu saman til að fagna upphafi nýs veiðisumars.
Ragnheiður Thorsteinsson, formaður SVFR, setti athöfnina og rifjaði upp langa og merka sögu Elliðaánna sem um áratugaskeið hafa skipað sér sess meðal þekktustu og vinsælustu veiðisvæða landsins. Hún fjallaði um mikilvægi ánna og þá einstöku menningar- og náttúruarfleifð sem þær skapa fyrir Reykvíkinga.
Að því loknu steig Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, í pontu og tilkynnti hver hlyti nafnbótina Reykvíkingur ársins 2026. Að þessu sinni hlaut Jensína Edda Hermannsdóttir, leikskólastýra við Laufásborg, þann heiður fyrir framlag sitt til samfélagsins og ómetanlegt starf í þágu barna og fjölskyldna í Reykjavík.
Jensína Edda hóf daginn með eftirminnilegum hætti þegar hún landaði fallegum urriða skömmu eftir að veiðar hófust. Veiðin setti skemmtilegan svip á opnunina og vakti mikla ánægju meðal viðstaddra.
Mikil spenna ríkti við árbakkann enda höfðu fyrstu laxar sumarsins þegar látið sjá sig í ánni. Það var síðan Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, sem landaði fyrsta laxinum við opnunina. Hann veiddist í Hundasteinum og mældist glæsilegir 78 sentímetrar.
Fyrr um morguninn hafði Hildur Björnsdóttir sett í lax á sama veiðistað en sá slapp. Borgarstjórinn lét það þó ekki á sig fá og landaði síðar um daginn fallegum urriða í veiðistaðnum Hrauni.
Var þetta 87. árið sem Elliðaárnar eru opnaðar undir merkjum SVFR og hefur borgarstjórinn í Reykjavík opnað árnar frá árinu 1960.
Nú tekur við spennandi veiðisumar í Elliðaánum og bíða veiðimenn spenntir eftir því að fylgjast með framvindu laxagöngunnar á komandi vikum. Öll veiðileyfi í Elliðaánum í sumar eru uppseld en hægt er að ná í spennandi lax- og silungsveiðileyfi á fjölmörgum ársvæðum um land allt í vefsölu SVFR.
Hér flott myndband frá deginum sem Hrafnhildur Gunnardóttir, kvikmyndagerðarkona, tók en hún er einnig meðlimur í árnefnd Elliðaánna.








