Barnadagar í Elliðaánum.

Eins og fyrri ár verður í boði barna og unglingadagar hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur í Elliðaánum.

Í boði eru 5 hálfir dagar, þar sem félagsmönnum 18 ára og yngri gefst kostur á að koma og veiða í Elliðaánum undir handleiðslu reyndra veiðimanna.

Skráning fer fram með tölvupósti á [email protected] þar sem kennitala og nafn viðkomandi barns/unglings kemur fram og hvaða dag er óskað eftir sem og varadagsetningu ef þær koma til greina.

Skráningu lýkur 25. maí.

Dagar sem í boði eru:
23. júní fyrir hádegi
14. júlí fyrir hádegi
14. júlí eftir hádegi
28. júlí fyrir hádegi
28. júlí eftir hádegi

Þá daga sem veiði er fyrir hádegi er gott að veiðimenn séu mættir um klukkan 6:30 í veiðihús, en þá daga sem veiði er eftir hádegi er gott að veiðimenn séu mættir 14:30 í veiðhús. Reyndir veiðimenn taka við þátttakendum og leiða þá í allan sannleika um leyndardóma Elliðaánna og hvernig á að bera sig að við laxveiðina.
Veiðin er fyrir alla þá sem eru undir 18 ára aldri og geta veitt sjálfir.
Foreldrar barna fylgja börnum sínum við veiðarnar, en eingöngu til halds og trausts. Á svæðinu verða leiðsögumenn sem leiðbeina við veiðarnar. Leiðsögumaður fylgir hverjum hópi.

Ánni er skipt í 4 svæði (engin frísvæði) og verða allir að fylgja fyrirmælum sem gilda á þessum dögum.
Allir mæta með veiðibúnað sem ætlaður er til laxveiða.
Að veiðinni lokinni bíður hópsins grillveisla við veiðihúsið

Með kærri veiðikveðju,
Fræðslunefndin

 

By admin Fréttir