Barna og unglingadagar 2018

Í sumar eru í boði 5 hálfir dagar sem félagsmönnum 18 ára og yngri gefst kostur á að koma og veiða í Elliðaánum í boði félagsins.

Skráning fer fram á svfr@svfr.is og er til miðnættis 22. apríl.  Takmarkaður stangarfjöldi er í boði.
Aðeins er tekið við umsóknum sem berast með tölvupósti.

Dagarnir sem í boði eru:
24. júní FYRIR hádegi (sunnudagur)
15. júlí FYRIR hádegi (sunnudagur)
15. júlí EFTIR hádegi (sunnudagur)
29. júlí FYRIR hádegi (sunnudagur)
29. júlí EFTIR hádegi (sunnudagur)

Taka skal fram hvaða dag óskað er eftir og hvort fyrir eða eftir hádegi, fínt er að láta líka vita hvort það séu einhverjir varadagar sem kæmu til greina.

Þá daga sem veiði er fyrir hádegi er fínt að börnin mæti um klukkan 6:30 en kl. 14:30 þá daga sem veiði er eftir hádegi við veiðihúsið þar sem reyndir veiðimenn taka á móti þátttakendum og leiða þá í allan sannleika um leyndardóma Elliðaánna og laxveiðanna.

Veiðin er fyrir alla þá sem eru undir 18 ára aldri og geta veitt sjálfir.
Foreldrar barna fylgja börnum sínum við veiðarnar, en eingöngu til halds og trausts. Á svæðinu verða leiðsögumenn sem leiðbeina við veiðarnar. Leiðsögumaður fylgir hverjum hópi.
Ánni er skipt í 4 svæði (engin frísvæði) og verða allir að fylgja fyrirmælum sem gilda á þessum dögum.
Allir mæta með veiðibúnað sem ætlaður er til laxveiða.
Að veiðinni lokinni bíður hópsins grillveisla við veiðihúsið

Með kærri veiðikveðju,
Fræðslunefndin

By admin Fréttir