Aðalfundur SVFR 2018

Aðalfundur SVFR

Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur verður haldinn þann 24. febrúar 2018. Fundurinn fer fram í Sal Garðyrkjufélags Íslands, Síðumúla 1 og hefst kl. 16:00.

Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf en dagskrá fundarins verður birt þegar nær dregur. Á aðalfundinum verður formaður SVFR kjörinn til eins árs og kosið verður um sæti þriggja stjórnarmanna til tveggja ára.

Framboðum til stjórnar skal skila skriflega til skrifstofu félagsins eigi síðar en fjórtán dögum fyrir aðalfund og er því frestur til klukkan 23:59, laugardaginn 10. febrúar. Best er að senda tölvupóst á [email protected]

Allir skuldlausir félagsmenn 18 ára og eldri eru kjörgengir til stjórnarkjörs. Starfsfólk og stjórn SVFR hvetja félagsmenn til að fjölmenna á fundinn en rétt til setu á fundinum hafa allir félagsmenn sem eru skuldlausir við félagið. Atkvæðisrétt hafa einungis félagsmenn 18 ára og eldri.

Kveðja,
Stjórn SVFR

By admin Fréttir