Kæru félagar!
Það styttist í aðalfund félagsins sem er á dagskrá fimmtudaginn 27. febrúar nk. kl. 18:00. Fundurinn fer fram í Akóges salnum, Lágmúla 4.
Dagskrá aðalfundarins er sem hér segir:
1. Formaður setur fundinn
2. Formaður minnist látinna félaga
3. Formaður tilnefnir fundarstjóra
4. Fundarstjóri skipar tvo fundarritara
5. Inntaka nýrra félaga
6. Formaður flytur skýrslu stjórnar
7. Gjaldkeri les upp reikninga
8. Framkvæmdastjóri kynnir rekstraráætlun 2025/2026
9. Umræður um skýrslu og reikninga
10. Reikningar bornir undir atkvæði
11. Gjaldkeri ber fram tillögu um árgjöld
12. Kynning og kosning formanns til eins árs (sjálfkjörið)
13. Stjórnarkjör (3 framboð í 3 stöður – sjálfkjörið)
14. Kynning og kosning á nýjum aðilum í fulltrúráð.
15. Kosning tveggja skoðunarmanna.
16. Tillaga að endurskoðenda félagsins.
17. Önnur mál
18. Formaður flytur lokaorð
19. Fundastjóri slítur fundi