Stangaveiðifélag Reykjavíkur hvetur félagsfólk sitt til að sýna Seyðfirðingum stuðning og mæta á mótmælin gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði, sunnudaginn 11. október kl. 15:00, á Austurvelli.
Nýverið voru gefin út leyfi til eldis á frjóum laxi í sjókvíum í Seyðisfirði, þrátt fyrir að um 75% Seyðfirðinga séu andvíg eldinu.
Sjókvíaeldi hvar sem það er, varðar allt stangveiðifólk. Hver nýr eldisstaður eykur hættuna á að eldislax sleppi og gangi upp í ár, þar sem hann blandast villtum laxi og veldur óafturkræfum skaða. Reynslan sýnir að eldislax ferðast hundruð kílómetra og hefur fundist í ám víða um land. Með eldinu fylgir líka laxalús og sjúkdómar sem bitna á villtum laxi, sjóbirtingi og sjóbleikju.
Villti íslenski laxinn er sameiginleg auðlind sem við eigum að skila áfram til næstu kynslóða veiðimanna. Sýnum að okkur stendur ekki á sama.
Mætum öll 11. október!