Sandá í Þistilfirði

Sandá í Þistilfirði er að kveikja á sér eftir frekar rólega byrjun. Skilyrði til veiða á NA landi hafa verið erfið í sumar vegna sólbráðar og mikils vatns,fiskur að ganga frekar seint. Skilyrðin eru aftur á móti mjög góð núna og má geta þess að hollið sem er að ljúka veiðum núna veiddi 18 laxa á 3 dögum. Smálaxagöngurnar eru að byrja og mikið er af stórum laxi í ánni að sögn kunnugra, stór straumur um næstu mánaðarmót sem verður stærsti laxastraumur sumarsins á NA landi.

Þetta lofar afskaplega góðu fyrir veiðina í ágúst og september,  þess má geta að það eru laus tvö holl á besta tíma í seinni part ágústmánaðar og einnig eru 3 holl laus í september, tíma stóru laxana!

 

 

By Hjörleifur Steinarsson Fréttir