Laxinn mættur í Langá!

Fyrsti laxinn sem fer í gegnum teljarann í Skuggafossi 2026

Fyrsti laxinn kominn í gegnum teljara.

Fyrsti laxinn í Langá renndi sér í gegnum teljarann kl 18:01 í gær, þessi glæsilega 71 cm hrygna sem sést á meðfylgjandi mynd.

Samkvæmt teljara eru 2 komnir í gegn en einungis náðist mynd af öðrum þeirra. Þetta telst ansi góður fyrirboði fyrir veiðina, yfirleitt mætir laxinn aðeins seinna í Langá heldur en í Norðurá og jákvætt að sjá svona glæsilegt eintak svona snemma.

Nú er kjörið tækifæri til að grípa lausar stangir í júní í Langá, frábært tækifæri til að komast í nýgenginn lax á fínu verði.

Einnig viljum við vekja athygli á góðum bitum í laxveiðinni á öðrum svæðum SVFR.

 

 

 

 

By Hjörleifur Steinarsson Fréttir Langá