Stangaveiðifélag Reykjavíkur býður upp á kastnámskeið í samvinnu við Jóhann Sigurð Þorbjörnsson.
Jóhann, eða Jóa í Veiðiflugum, þarf vart að kynna fyrir íslenskum veiðimönnum og konum. Hann hefur kennt og leiðbeint í fluguköstum um árabil og býr yfir mikilli reynslu í kennslu fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Kastnámskeiðin eru frábært tækifæri fyrir þá sem vilja bæta kasttækni sína, ná lengra og nákvæmara kasti og öðlast meira sjálfstraust við árbakkann fyrir komandi veiðisumar.
Sex námskeið í boði
Námskeiðin fara fram á Klambratúni og hefjast stundvíslega kl. 19:00. Áætluð tímalengd er um 3 klukkustundir. Þátttökugjald er 15.000 kr. og eru fimm laus pláss á hverju námskeiði. Þátttakendur þurfa að koma með eigin stöng (með hjóli og línu) og mikilvægt er að klæða sig eftir veðri.
Alls verða sex námskeið í boði dagana 12., 13., 14., 19., 20. og 21. maí. Hægt er að bóka pláss með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.
Flugukastkennarinn - Jóhann Þorbjörnsson