Aðalfundur SVFR var haldinn í gær, 26. febrúar, í Akóges salnum í Lágmúla 4.
Starf Stangaveiðifélags Reykjavíkur gekk afar vel á árinu 2025 og methagnaður varð af rekstrinum. Heildartekjur námu 669,2 milljónum króna og hagnaður ársins var 66,2 milljónir króna. Þetta er fimmta árið í röð sem eiginfjárstaða félagsins styrkist, en þar á undan var hún veik um langt skeið. Ýmsir samverkandi þættir skýra bætta afkomu: meiri sala veiðileyfa en áætlað var, jákvæð afkoma allra ársvæða, almennur agi í rekstri félagsins, bættir innheimtu- og skráningarferlar, öflugt starfsfólk og fjölgun félagsmanna.
Fjármagnstekjur voru óvenju miklar og hagnaður varð af rekstri Veiðikortsins. Þá hefur stjórn lagt ríka áherslu á að tekjur af hverju veiðisvæði standi undir kostnaði, í stað þess að afgangur af einu svæði sé nýttur til að greiða niður tap af öðru. Mikilvægt er að halda þeirri stefnu til streitu þótt aðstæður geti verið krefjandi.
Rekstur veiðihúsa gekk vel en félagið rak í eigin nafni húsin á urriðasvæðunum fyrir norðan en útvistaði rekstri veiðihúsanna við Langá og Haukadalsá.
Helga Jónsdóttir, gjaldkeri SVFR, fór yfir ársreikninginn á fundinum. Hún sagði sterka eiginfjárstöðu mikilvæga vegna mikilla fjárskuldbindinga félagsins og að nauðsynlegt væri að hafa vaðið fyrir neðan sig. Ingimundur Bergsson, framkvæmdastjóri, fór yfir rekstraráætlun ársins 2026. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir að félagið skili ríflega 42 milljóna króna hagnaði á yfirstandandi rekstrarári.
Ragnheiður áfram formaður
Ragnheiður Thorsteinsson, formaður SVFR, var ein í framboði til formanns og því sjálfkjörin. Hún hefur nú hafið sitt fjórða kjörtímabil sem formaður, en formannskjör fara fram árlega. Líkt og síðustu tvö ár kynnti hún skýrslu stjórnar með afar glæsilegu myndbandi sem mæltist vel fyrir, líkt og áður. Ragnheiður benti á mikilvægi sterkrar eiginfjárstöðu í ljósi mikilla fjárskuldbindinga sem hvíla á félaginu. Hún minnti á að sagan hefði sýnt að margvísleg áföll gætu dunið á með skömmum fyrirvara og hratt gengið á eignir félagsins.
Hægt er að horfa á mynbandið hér að neðan.
Skýrsla stjórnar SVFR 2025
Nýir samningar og ársvæðum fjölgað
Nýr samningur um Flekkudalsá og Miðá var undirritaður á árinu en bæði ársvæði hafa notið mikilla vinsælda meðal félagsmanna. Þá var samið um leigu á Sandá í Þjórsárdal til næstu fimm ára auk þess hefur félagið tekið að sér sölu veiðileyfa á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal, þar sem bæði veiðist lax og urriði.
Þorgils Helgason nýr í stjórn
Þrír voru í framboði um þrjú laus sæti í stjórn SVFR og því sjálfkjörið. Hrannar Pétursson og Trausti Hafliðason gáfu áfram kost á sér, en Þorgils Helgason kemur nýr inn og tekur sæti Halldórs Jörgenssonar sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Halldór hefur setið í stjórn undanfarin sex ár og var honum þakkað fyrir vel unnin störf í þágu félagsins. Að fundi loknum færði formaður honum veglegan blómvönd.
Ný stjórn SVFR skipa: Brynja Gunnarsdóttir, Dögg Hjaltalín, Helga Jónsdóttir, Hrannar Pétursson, Þorgils Helgason, Trausti Hafliðason og Ragnheiður Thorsteinsson, formaður.
Fimm voru í framboði um fimm laus sæti í fulltrúaráði SVFR og því sjálfkjörið. Sjálfkjörnir eru: Guðmundur Guðlaugsson, Helga Gísladóttir, Hörður Vilberg, Jóhann Torfi Steinsson og Karl Lúðvíksson.

Óbreytt félagsgjöld
Stjórn lagði til óbreytt félagsgjöld haldist óbreytt og var sú tillaga samþykkt. Almennt félagsgjald verður því áfram 13.700 krónur. Árgjald maka og félagsmanna yngri en 20 ára, sem og eldri en 67 ára, verður 5.200 krónur.
Ályktun aðalfundar um vernd Elliðaánna
Stjórn SVFR telur mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vernda árnar innan höfuðborgarsvæðisins og hefur áhyggjur af byggðaþróun í nágrenni þeirra. Bent er á að óvarleg og óheft umferð við árnar, ljósmengun, efnistaka og illa hönnuð mannvirki geti valdið óafturkræfum skaða á lífríki þeirra. Smelltu á hnappinn til að lesa ályktun aðalfundar.
Stjórn SVFR þakkar þeim félagsmönnum sem mættu á fundinn kærlega fyrir komuna.
Með kveðju,
SVFR