Í gær var undirritaður nýr samningur milli Stangaveiðifélags Reykjavíkur (SVFR) og Fiskræktar- og veiðifélags Miðdæla um áframhaldandi samstarf um Miðá í Dölum. Undirritunin fór fram í veiðihúsinu við ána og voru það Ragnheiður Thorsteinsson, formaður SVFR, og Skúli Hreinn Guðbjörnsson, formaður veiðifélagsins, sem skrifuðu undir fyrir hönd félaganna.
Samningurinn tryggir áframhaldandi aðgengi félagsmanna SVFR að þessari vinsælu laxveiðiá, sem hefur verið nánast fullbókuð ár hvert. Aðeins tvö holl eru nú óbókuð fyrir sumarið 2025 – dagsetningarnar 23.–25. september og 27.–29. september.
Ein mikilvæg breyting tekur gildi með nýja samningnum: frá og með næsta veiðitímabili verður eingöngu leyfilegt að veiða á flugu. Með þeirri breytingu má segja að „maðkurinn sé tekinn upp úr Miðá“ – en þetta er í samræmi við sívaxandi áherslu á sjálfbærni árinnar og verndun laxastofnsins.
SVFR lýsir yfir ánægju með áframhaldandi samstarf og hlakkar til næsta kafla í sögu Miðár undir merkjum félagsins.
Veiðikveðja,
SVFR