Opnun Elliðaánna fer fram á morgun, föstudaginn 20. júní, klukkan 08:00. Veiðimenn hittast við veiðihúsið í Elliðaárdal þar sem Ragnheiður Thorsteinsson, formaður SVFR, lýsir formlega yfir opnun ánna og býður Heiðu Björg Hilmisdóttur, borgarstjóranum í Reykjavík, að ganga til veiða. Þetta verður í 86. skipti sem árnar eru opnaðar fyrir veiði undir merkjum SVFR, en borgarstjóri hefur tekið þátt í opnuninni allt frá árinu 1960.
Laxinn er þegar genginn í árnar og má búast við líflegri stemningu við árbakkann. Það verður spennandi að sjá hvar fyrsti laxinn kemur á land en hann er líklega sá lax sem mest er myndaður á landinu á hverju ári.
Elliðaárnar eru í dag meðal bestu laxveiðiáa landsins, þökk sé stofnendum félagsins, og eru hluti af stórkostlegu útivistarsvæði Reykvíkinga. Fjölmargir ungir veiðimenn taka þar sín fyrstu köst á hverju sumri og stangaveiðiíþróttin blómstrar sem aldrei fyrr.
Viðstöddum verður boðið upp á morgunkaffi og meðlæti.