Veiðin er hafin í Langá

Langá á Mýrum opnaði í morgun og markaði þar með upphaf laxveiðitímabilsins 2025 hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur.

Frábært vatn er í ánni og veður milt og gott. Kjöraðstæður myndu einhverjir segja enda var fyrsti laxinn, sem við höfum fengið veður af, kominn á land korter fyrir átta í Glannabroti. Falleg 66 cm. hrygna sem tók litla rauða Frances með kón og ekki er annað að sjá en að veiðimaðurinn, Sigurjón Gunnlaugsson, hafi verið sáttur með fenginn.

Við spáum því að það sé líf og fjör framundan í kortunum og hlökkum til að fylgjast með veiðinni í Langá næstu daga og vikur.

Strekktar línur!

By Eva María Grétarsdóttir Fréttir