Framboðskynning – Þorgils Helgason

Þorgils þekkja félagsmenn SVFR en hann hefur verið veiðimaður frá blautu barnsbeini og starfað sem leiðsögumaður um árabil á fjölmörgum ársvæðum um land allt. Þorgils er einn í framboði til stjórnar og er því sjálfkjörinn til næstu tveggja ára. Hann mun taka sæti Halldórs Jörgensonar sem ákvað að bjóða sig ekki aftur fram og þökkum við honum fyrir vel unnin störf í þágu félagsins undanfarin ár.

Hér fyrir neðan er kynning frá Þorgils til félagsmanna. Aðalfundur SVFR fer fram 26. febrúar í Ákóges salnum, Lagmúla.

---------------------------------------

Kæru félagsmenn,

Ég kem nýr inn í stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur á næsta aðalfundi og hlakka mikið til að leggja mitt af mörkum í starfi félagsins.

Ég hef veitt frá því ég man eftir mér en veiðimennskan varð stór hluti af lífi mínu þegar ég tók þá ákvörðun 12 ára gamall að veiða eingöngu á flugu. Síðan þá hef ég starfað í veiðibúð, verið við leiðsögn víðs vegar um landið í um áratug, selt veiðileyfi og gegnt starfi sölustjóra SVFR í tvö ár. Veiðin hefur því bæði verið ástríða og starfsvettvangur.

Þær ár sem hafa mótað mig mest eru Kjarrá, Þverá, Flekkudalsá, Haukadalsá og Laxá í Mývatnssveit – en í raun finnst mér flest veiði á stöng skemmtileg. Á veturna geng ég til rjúpna með góðum vinum, en annars finnst mér best að verja tíma með fjölskyldu og vinum. Ég ferðast mikið, bæði innanlands og utan, og hef mikla ánægju af góðum mat og góðum félagsskap.

Unnustan mín er Unnur Elísabet, leikkona og leikstjóri, og við eigum tvö börn – Emilíu Álfsól, sem er á unglingsaldri, og Arnmund Huga, fjögurra ára kraftmikinn strák.

Ég hlakka til að starfa í stjórn Stangó, styðja sérstaklega við ungliðastarf félagsins og hitta ykkur félagsmenn sem oftast – helst á bakkanum.

Stangaveiðikveðja,
Þorgils Helgason

By Ingvi Örn Ingvason Fréttir