Frábær stemning á Nördaveislu SVFR
Fimmtudaginn 26. mars var glæsileg mæting á Nördaveislu SVFR á Brasa Restaurant í Turninum, þar sem kvöldið var helgað laxveiði undir yfirskriftinni Öfgar á örlagastundu. Dagskráin snerist að þessu sinni að þeim aðstæðum sem reyna hvað mest á veiðimennskuna, þegar vatn er ýmist of mikið eða of lítið og veiðimenn þurfa að lesa aðstæður vel, …